VIÐ VILJUM KOMAST AÐ OG KOMAST AF STAÐ!
Sævar Óli Hjörleifsson lætur verkin tala
—
Sæll Sævar og takk fyrir að gera þetta með mér. Ég hef verið að spyrja
frambjóðendur svona svipaðra spurninga og held áfram á þeirri braut hér. Við
byrjum svona á almennu nótunum. Hvar, hvernig, hvenær, hver ertu, hverjir eru
þínir hagir og þar fram eftir götunum…
Ég heiti Sævar Óli Hjörvarsson og er frá Reykjavík, en ættaður af Hornströndum.
Mamma er frá Hornströndum, pabbi frá Reykjavík. Ég er búinn að búa hérna á Ísafirði
síðan ég var 16 eða 17 ára og ætla að enda í kirkjugarðinum hérna einhvers staðar, við
hliðina á konunni minni. Það er búið að ákveða allt svoleiðis.
Ég er húsasmíðameistari og vélstjóri og hef verið í fyrirtækjarekstri síðustu 30 ár.
Já, þú hefur reynslu úr atvinnulífinu?
Já, í félagi við aðra rak ég fyrirtækið Bílagarð, Eyrarsteypu og KNH á sínum tíma, núna
rek ég Geirnaglann með félögum mínum, við erum búnir að byggja snjóflóðagarða, brýr,
hafnir og allan andskotann.
EKKI BÚINN AÐ SVÍKJA NEITT ENNÞÁ
Hvernig datt þér í hug að taka þátt í stjórnmálum núna árið 2026?
Það var nú bara hringt í mig 12 tímum fyrir lokun og ég spurður hvort ég vildi skipa
fyrsta sæti í þessum flokki. Ég tók alveg tvær og hálfa sekúndu til að hugsa mig um og
sagði svo: „Já!“ Ég hafði aðeins verið að hugsa um hvort að maður ætti að láta reyna á
þetta.
Stjórnkerfið hér, það hefur ekki alltaf reynst vel, mig langar svolítið að gera það liprara
fyrir fólkið í bænum. Þar á meðal mig, þig og alla hina.
Ég er auðvitað að koma að þessu í fyrsta skipti, þannig að ég er ekki bundinn neinu, ég
er ekki búinn að svíkja neitt ennþá. Mig langar reyndar mjög að prófa að fara í
bæjarstjórn og athuga hvort ég gleymi þá öllu sem ég er búinn að segja hingað til.
En þetta var bara skyndiákvörðun, að fara fram.
1
Hverjir myndirðu segja að væru svona kostir Ísafjarðarbæjar til búsetu, lífs og
starfa?
Allt. Það er gott að búa hérna. Það sem okkur vantar núna er að krakkarnir geti klárað
skólana hérna, svo þeir fari ekki svona mikið í burtu. Við þurfum að stefna að því að
missa ekki krakkanna frá okkur. Þau eiga til að fara til náms í Reykjavík, eignast þar
börn og svo hverfa þau bara.
Ég bara elska að vera á Vestfjörðum. Ég á heima hérna, ég á sumarbústað hérna, ég
bara er hérna.
Já einmitt, það er fínt að hafa þig.
En hvað myndirðu segja, ef við lítum yfir síðustu 25 árin eða svo? Hvað finnst þér
hafa verið vel gert við stjórn bæjarins og rekstur hans, og hvar hafa pottar
brotnað?
Maður sér aldrei það sem vel er gert, það er svolítið svoleiðis. Maður verður miklu betur
var við það sem fer illa. Þetta er fallegur bær og margt hefur verið gert, gangstéttir
lagaðar hér og þar og byggt upp.
Það sem vantað hefur uppá er viðhald eigna bæjarins, og framtíðarsýn, finnst mér. Það
er ekki nóg að horfa bara tvö ár fram í tímann, helst þarf að horfa 25 ár fram í tímann
eða jafnvel lengur.
Ég reyndi nú fyrir 20 árum, þá lét ég teikna sundlaug og heita potta við Torfnesið,
líkamsrækt og allt tilheyrandi. Ég lagði það fyrir alla sem voru í framboði þá og öllum
leist rosalega vel á þetta. Ég var tilbúinn að láta þetta bara af hendi og þeir myndu svo
bara klára þetta með fólkinu. Það voru allir voða jákvæðir og glaðir með þetta. Svo
gerði enginn neitt.
Það var eins og ein kona sagði við mig hérna á kjörfundi: „ég er ekkert að fara fram á
að þetta sé á næstu fjórum árum, en það væri rosa gott að sjá einhverja áætlun upp á
kannski tíu ár.“
Skólinn er ennþá of lítill, hvernig ætlum við að enda þetta? Núna erum við til dæmis að
fara að stækka grunnskólann, og við ætlum að kaupa einhver mygluhús og gera brú á
milli.
Af hverju horfum við ekki fram í tímann og byggjum upp á Torfnesi? Byggjum ofan á
inngang íþróttahússins og lengjum það í suður og norður. Þar fáum við góða baðklefa
2
á neðri hæðinni sem duga fyrir iðkendur á svæðinu, svo líkamsrækt á efri hæðinni,
sundlaugin og heitu pottarnir gætu komið við suðurenda íþróttahússins. Þá er hægt að
samnýta starfsfólk, í framtíðinni væri hægt að byggja grunnskóla á uppfyllingu í
pollinum og tengja þetta saman með undirgöngum undir veginn til dæmis.
GERUM HLUTINA NÚNA
Það er frekar erfitt að byggja hérna. Ef þú ætlar að byggja þá færðu ekki lóð og það er
alls kyns vesen. Ég ætlaði að byggja mér skemmu, þá var ekki hægt að fá lóð, þá var
allt óklárt og þetta er endalaust svona.
Ég ætlaði að byggja mér einbýlishús á Seljalandsveginum fyrir fimm árum, teikningar
komnar og allt. Þá var allt ómögulegt, því nýtt aðalskipulag var ekki tilbúið, átti að koma
bara eftir nokkra daga. Það eru fimm ár síðan, skipulagið er ekki ennþá komið. Svo
gafst ég bara upp á þessu.
Svo ákvað ég að byggja smá viðbót við bílskúrinn í blokkinni hjá mér og þú veist, menn
klóruðu sér, vísuðu hver á annan og svöruðu ekki. Þetta er leiðinlegt og tekur tíma. Ef
þeir sem vinna við þetta ætla ekki að vinna fyrir okkur íbúana, þá vil ég bara reka þá.
Sorrí. Það er bara þannig. Fólkið sem vinnur á bæjarskrifstofunni er að vinna fyrir okkur
og þau eiga að þjóna okkur.
Hvar myndirðu segja að greini á milli ykkar og hinna flokkanna? Hvað hefur
Miðflokkurinn fram að færa sem aðrir listar hafa ekki?
Miðflokkurinn vill bara byrja á þessu, gera hlutina núna. Það virðist vera að aðrir vilji lofa
hinu og þessu, en svo gerist ekki neitt. Við viljum komast að og komast af stað! Við
verðum að eyða pening ef við ætlum að þróast hérna. Það gengur illa að laða fólk að og
halda í börnin ef það er ekki almennileg íþróttaaðstaða, sundlaug og önnur aðstaða fyrir
íþróttaiðkun.
Við þurfum að kýla á þetta, taka vel í umleitanir fólks og vera samvinnuþýð. Ég er ekki
að tala um að gera neitt ólöglegt, ég er alls ekki að tala um það. Menn verða bara að
gera það sem hægt er til þess að hjálpa fólki. Við förum ekki fram á annað.
Bærinn okkar er frekar snyrtilegur, fólk málar húsin sín og gerir við þau, við getum verið
stolt af bænum okkar. Miðbærinn er flottur hjá okkur miðað við marga aðra. En svo
þurfum við að hugsa um úthverfin okkar, Bærinn er ekki að hugsa nógu vel um Flateyri
og Suðureyri, Það þarf aðeins að taka til hendinni þar. Mér finnst reyndar gaman að
keyra inn í Þingeyri, það er fallegur bær og skemmtileg uppbygging að eiga sér stað.
3
VERÐUM AÐ NÝTA MANNSKAPINN
Hvort viltu frekar leggja áherslu á sterkari þjónustu, eða lægri gjöld og álögur?
Ég vil ekki lægri gjöld, en það þarf að nýta peningana betur. Ein staða er hellings
peningur yfir árið, við verðum að nýta betur mannskapinn sem við erum í vinnu.
Hverjar sérðu fyrir þér sem helstu áskoranir og hvaða markmiðum viltu ná
varðandi leikskólamál, íþróttaaðstöðu og svo atvinnusköpun?
Varðandi leikskólana, þá er mér sagt að þar sé nóg pláss, það sé bara mannekla sem
verður til þess að ekki er hægt að taka börnin inn tímanlega.
Ég vil ekki vera að loka Tanga út af einhverju ákveðnu máli, ég vil bara leysa það mál og
það þarf að gera með leikskólakennurum og foreldrum. Helst ætti að færa Tanga aftur
undir Sólborg og þau sjá bara um mannskapinn og deila þessu á milli sín.
Hvað íþróttaaðstöðuna varðar, þá vil ég byggja upp Torfnes til frambúðar. Ég vil setjast
niður með íþróttahreyfingunni og fara í gegnum hvernig þeir vilja fara í þetta. Ég sé
þetta alveg fyrir mér, af því ég er búinn að spá svolítið í þessu. Við þurfum sem sagt að
byggja við íþróttahúsið sem er fyrir. Það þarf að gera áætlun upp á 10-12 ár og byrja
einhvers staðar. Ef þú byrjar, þá sérðu endann í fjarska.
Þannig að ég vil byrja þarna í samráði við hreyfingarnar. Ég sé fyrir mér að byggja
búningaaðstöðuna fyrst, sem hefði sjúkraþjálfun og líkamsrækt á efri hæðinni, fara svo í
boltahúsið og enda síðan á sundlauginni við hliðina.
Byggja svo grunnskólann út í Pollinn á uppfyllingu, þannig sé ég þetta fyrir mér. Ég held
að það sé best að hafa þetta allt á sama stað. Það myndi spara margar vinnustundir,
við gætum samnýtt mannskap sem er dýr. Það er ekki hægt ef starfsemin er út um
allar trissur.
Ef við tökum atvinnusköpun, þá er aðalatriðið að taka vel á móti öllum og reyna að
greiða úr málum hjá fólki, svo fólk geti fengið atvinnuhúsnæði byggt og þar fram eftir
götunum. Það skiptir miklu máli.
Við verðum sem sagt að að taka á móti þeim sem hingað vilja koma og reyna að hjálpa
þeim eins og hægt er. Við erum auðvitað ekki að fara að borga með neinum til þess að
koma hingað, en við þurfum að veita afslátt á lóðum og svona. Við verðum að gera það
eins og aðrir.
4
Ég þyrfti að tala betur um þetta eftir kosningarnar, þegar ég hef sett mig betur inn í
málin. En það þarf að spara í kerfinu því þessar hugmyndir kosta helling. Ég er alveg til í
að setjast niður með leik- og grunnskólakennurum til að sjá hvernig er hægt að
hagræða og gera eitthvað í skólakerfinu. Það þarf að setjast niður, ræða alvarlega við
starfsfólkið og reyna að fá út hvaða vandamál eru í gangi og aðstoða við að leysa þau.
Þú veist, viðurkenna að það eru vandamál og reyna að leysa þau.
SKILVIRKNI STJÓRNKERFISINS
Hvaða áherslur hyggist þið leggja í mannauðsmálum til að styrkja stöðu
bæjarins? Og svona, tengingu stjórnsýslunnar við íbúa?
Ég vil náttúrulega gera stjórnkerfið skilvirkara, þannig að tekið sé á móti fólki og
vandamál þess leyst. Frekar en að svara ekki erindum eða láta ekki ná í sig. Fólk þarf
að vinna vinnuna sína og það þarf að gera skurk í því.
Eins og ástandið er núna, maður bara fer eitthvert og svo verður þú að banka og banka
og svo er verið að finna einhvern og svo fer þetta fyrir nefnd og nefndin segir nei, en
engin skýring gefin. Þetta er svo leiðinlegt! Maður talar við fólk og það er bara hundleitt
á þessu. Hvað heldurðu að við gætum sparað margar vinnustundir ef það væri bara
tekið almennilega á móti fólki og það leitt í gegnum ferlið sem þarf til að ná sínum
markmiðum? Þær væru ansi margar er ég hræddur um. Á báða bóga!
Svo þurfum við að passa að stjórnsýslan stækki ekki upp úr öllu valdi! Að það bætist
bara í mannskap og við borgum og borgum án þess að þjónustan batni að neinu viti!
Takið þið afstöðu til símanotkunar í skólum?
Mér finnst þetta bara ekki ganga í skóla að krakkarnir séu með síma. Ef þú ferð í flugvél
þá er slökkt á öllum símum. Það á bara að vera eins í skólanum, annað hvort banna
símanotkun eða koma fyrir tækni sem lokar á tenginguna. Það á ekki að vera sími í
skólum. Ef foreldrar þurfa að ná í krakkana, þá er bara hringja í ritarann og láta ná í þau.
Ungir krakkar með 200.000 króna síma, þetta er bara rugl! Komið í vitleysu!
SKÁLKAR Á SKÓLABEKK
Hver er fyrirhuguð stefna í málefnum grunnskólans ? Nú er árangur grunnskólans
á Ísafirði í PISA-könnunum víst snautlegur. Er það ásættanlegt?
5
Það er ekki ásættanlegt. Þess vegna vil ég persónulega setjast niður með skólafólki og
finna leið til að leysa þetta, það er hellingur af vandamálum í skólunum sem enginn vill
leysa. Og það er ekki hægt að tala bara um skólann á Ísafirði. Ég tala um skólann allan
hringinn í kringum landið.
Við ætlum að vera svo góð við alla að það verður á endanum til meiri leiðinda fyrir alla
hina. Þú varst í skóla í gamla daga, við vorum skammaðir þar.
Já já, iðulega.
Ef við vorum óþekkir, þá vorum við skammaðir. En nú má það ekki, þetta er ekki hægt
lengur. Það verður að vera hægt að aga krakkana, og foreldrarnir verða að gera það
líka. Ef krakkarnir eru óalandi og óferjandi, þá þarf bara að senda þau heim eins og í
gamla daga. Þau mega svo koma aftur eftir viku ef þau lofa að vera til friðs. Foreldrarnir
þurfa þá bara vera heima og sinna þeim.
Ef ég keyri of hratt úti á vegunum og löggan stoppar mig, heldurðu að þau klappi mér
bara á bakið og biðji mig að hætta? Nei! Þeir gera það ekki! Þeir sekta mig! Og ef ég er
stoppaður aftur, þá hækkar sektin!
Nú verða sjálfsagt allir brjálaðir, mér er alveg sama. Það verður að vera hægt að beita
aga á krakkana. Ég er auðvitað ekki að tala um að lemja þá eða loka þá inni í skáp. Ég
er ekki til í að taka prikið upp aftur, sem var notað í gamla daga og lemja á puttana á
krökkum, en það hlýtur að vera einhver millivegur? Það hlýtur að vera hægt að hafa aga
í kennslustofum þannig að óróaseggir verði ekki öðrum krökkum til trafala í náminu.
Ég vil bara taka á þessum agamálum í skólum og gefa kennurum tæki og tól til að taka
á þessu. Ég ætla auðvitað ekki að æða inn í skólana og lemja alla.
Og útlendingarnir? Nú verð ég kallaður rasisti, en ég segi bara: ég vil kenna þeim
íslensku! Fyrstu tímana á morgnana verður íslenskunám. Láta þau öll saman og kenna
þeim íslensku og setja þau svo inn í almennt skólastarf þegar þau eru komin með
íslenskuna nokkurn veginn á hreint. Ég er enginn rasisti — ég vil hjálpa þeim að læra
málið. Það breytir öllu fyrir fólk að kunna málið! Og það gerist ekkert endilega með því
að vera innanum hina, þá lendir kennarinn bara í einhverju bulli því hann getur ekki
kennt hinum þegar hann þarf að vera útskýra allt á all skyns tungumálum hvað hann er
að kenna og börnin læra hægt og illa. Fólk sem býr hérna þarf að læra íslensku. Við
ætlum ekkert að skipta yfir í ensku, við viljum halda íslenskunni, það er bara svoleiðis.
Við ætlum ekki að breyta okkar menningu í þeirra menningu, ég er allavega ekki til í
það.
6
Ég hef ekkert á móti útlendingum, svo það sé á hreinu. Ég hef gegnum tíðina unnið
mikið með útlendingum og þeir eru fínt fólk. Það eru auðvitað krimmar inn á milli en það
er bara eins og með Íslendingana.
Myndi koma til greina að setja einhverja mælikvarða á starf grunnskólans, til
dæmis eins og könnunina Skólapúls, sem var lögð af á sínum tíma? Hvað myndu
Miðflokksmenn vilja gera til að fylgjast með mikilvægustu stofnunum bæjarins?
Það þurfa að vera samræmd próf eða eitthvað álíka. Það þarf að vera eitthvað
samræmi, það verða að vera mælikvarðar á starf og árangur. Þannig að ég er hlynntur
því að gefa fólki einkunn sem er skiljanleg. Sumir eru betri en aðrir í bóklegum fögum
og aðrir eru betri í verklegum. Þannig er lífið, fólk velur sér þá fög eftir því.
Nú var lögð mikil vinna í að byggja upp faglegt starf á Tanga sem farið var út í af
tilfinnanlegri þörf. Eru lyktir þess máls ásættanlegar? Er ekki afturför að halda í
sama farið aftur?
Jú, ég hef verið að segja það. Ég þekki svo sem ekki allar aðstæður, en ég er þó þeirrar
skoðunar að það sé óþarfi að eyða einhverjum hundruðum milljónum í ekki neitt. Mér
finnst ekki ásættanlegt að leggja niður Tanga eins og staðan er í dag.
Ég sé engan akk í að leggja þennan skóla niður, ég vil bara bæta hann og nota hann.
Það er fínt að hafa fimm ára krakkana í síðasta bekk leikskóla saman. Það ætti bara að
láta þetta undir Sólborg aftur og reyna að halda þessu úti. Seinna verður líklega hægt
að byggja annan leikskóla og nýjan skóla og þá breytist staðan.
Mér finnst ekki sniðugt að ætla setja upp húseiningar á bílastæðin hjá leikskólunum til
að koma þar börnunum fyrir sem núna eru í Tanga. Ég hef ekki séð teikningu af þessu,
en get ekki ímyndað mér að það verði ásættanlegt. Það ætti bara að reyna fá fleiri
kennara til að hugsa um börnin og halda áfram með þetta góða verkefni.
FLUGIÐ ER MIKILVÆGT
Nú eru almenningssamgöngur milli byggðakjarnanna hér í sveitarfélaginu ekki til
fyrirmyndar. Hafið þið einhverja framtíðarsýn í þessum efnum?
Það þurfa náttúrulega að vera góðar samgöngur á milli byggðakjarna. Það þarf að hafa
litlar rútur sem fara þarna á einhverjum x tíma á dag. Það er bara þannig, ef við ætlum
að vera með alla þjónustu hér á Ísafirði, þá verða að vera einhverjar samgöngur á milli.
7
Menn þurfa bara að setjast yfir það með íbúum og finna hvernig þetta hentar og hvað
þarf til. Þú þarft ekki að fara með 50 manna rútu til Suðureyrar. En þú getur farið á þeim
bílum sem henta, tvisvar, þrisvar eða fjórum sinnum á dag, hvað sem þarf.
Við þurfum að finna út úr því hvernig á að hafa þessa þjónustu, svo hún nýtist fólkinu
sem best, og gera hana almennilega.
Hvaða möguleika hefur bæjarstjórn til að stuðla að nýjum almenningssamgöngum
til og frá norðanverðum Vestfjörðum ef áætlunarflug leggst af? Sérðu möguleika á
ferðum áætlunarbíla eða jafnvel strandsiglingum?
Mér þykir leiðinlegt ef flugið leggst af, vegurinn er ekki að fara styttast mikið meira.
Þetta fer aldrei undir 350 kílómetra, svo það er ekki í myndinni að leggja flugið af.
Kemur ekki til greina.
Það hefur enginn þolinmæði í strandsiglingar. Það yrðu þá bara að vera áætlunarbílar ef
allt fer á versta veg. Það er auðvitað nóg til af rútum, það er hægt að gera það þannig.
Það er nú alltaf að styttast leiðin suður en það er ekki óskastaðan.
GÖNGIN ERU SPRUNGIN
Hvernig sérðu fyrir þér Vestfjarðagöngin? Eiga þau að vera einbreið bara?
Þetta gengur ekkert upp eins og það er. Það þarf væntanlega að gera önnur göng til
hliðar. Ef við verðum tengd við hringveginn þá verður þarna rosalegt bílaflæði held ég,
og þá eru göngin bara sprungin. Þau eru raunar sprungin nú þegar. Ég hef ekki lent í
því, en menn eru að tala um að það geti tekið klukkutíma, einn og hálfan að komast í
gegn þarna á sumrin, þegar rúturnar eru allar að fara í gegn og kannski túristar sem
kunna ekki á þau.
Hver er afstaða þín og ykkar til sameiningar við nágrannasveitarfélögin, þ.e.a.s.
Bolungarvíkurkaupstað og Súðavíkurhrepp?
Það er langbest að sameina þetta allt saman, þá áttu allt undir einum hatti, það er bara
þannig. Það getur enginn sagt annað, nema kannski Víkararnir.
Þarna minnkarðu yfirbygginguna, Þetta eru frændur okkar og kollegar í Súðavík og
Bolungarvík, auðvitað er eina vitið að sameina þetta allt.
Við þurfum auðvitað að tryggja að þau sem eru að stjórna bænum sinni þessum smærri
kjörnum. Þau þurfa að fara þangað og tala við fólk. Ég hef aldrei séð tæknideildina úti á
Flateyri eða Suðureyri. Bæjarstjórinn á auðvitað að vera kíkja í kaffi og spjalla við það
8
og skoða umhverfið. Stjórnvaldið þarf að vera sýnilegt og aðgengilegt, það er bara
bráðnauðsynlegt.
GRASBLETTIR OG BÍLASTÆÐI
Hvar er framtíðarsvæði okkar fyrir íbúabyggð? Viltu þétta íbúabyggð á Eyrinni,
eða brjóta frekar nýtt land?
Í náinni framtíð er byggingaland inni í Firði, Við stefnum á að byggja þar, ekki vera
endalaust að nota alla bletti og bílastæði í bænum til þess að byggja á. Ég skil ekki
þessar pælingar, allir eiga að vera á hjólum og svona? Þetta er ekki hægt!
Það má alveg vera grasblettur í bænum, eða bílastæði, látið þau vera og bara byggið,
fyllið upp nýtt nýtt land fyrir nýjar íbúðir!
Ég vill til dæmis ryðja niður gömlu slökkvistöðinni þegar sú nýja er risin, og byggja þar
60 metra langa blokk. Helst fjórar hæðir með bílakjallara, fyrir eldra fólk sem getur horft
yfir djúpið að norðanverðu og verið í sólinni sunnanmegin. Þetta er alveg gerlegt.
Bærinn er byrjaður að skipuleggja íbúðabyggð inni í Holtahverfi, Það er alveg hægt að
gera svona á stuttum tíma, ef menn vinna allir saman.
Eins og staðan er, þá getur fólk ekki flutt úr húsunum sínum, af því það eru ekki til
íbúðir á Ísafirði sem passa fyrir fólkið. Fólk sem er að fara úr 200 fermetra húsnæði, er
ekkert að fara í 40 fermetra blokkaríbúð, svona 70 til 100 fermetra íbúðir væru bara fínar
fyrir svona fólk, með bílakjallara.
Ef menn vilja þétta byggð, þá er verið að troða blokkum inn í bæinn, á bílastæði eða
græna bletti. Ég meina, af hverju erum við að þessu? Við erum ekki Reykjavík. Við
getum alveg haft einhver bílastæði í bænum.
Það er núna verið að reka alla af höfninni í burtu, bílarnir mega hvergi vera. Svo erum
við að gera út báta, sem fara á Hornstrandir en farþegar þeirra og heimamenn sem
eiga báta mega hvergi leggja bílum sínum. Einhvers staðar verða menn að fá að leggja.
Svo segja menn: „Þetta er ekki okkar vandamál hjá bænum.“ Bíddu, er það ekki
bæjarins vandamál? Það hlýtur að vera, nú er verið að reka fólk með báta og kerrur á
olíutanganum í burta og enginn veit hvert á að fara með þá. Maður spyr: hvert á ég að
fara? „ Okkur er alveg sama“ er svarið. Þú ert kannski með 12 metra bát, fimm metra
háan og fimm metra breiðan. Þú átt bara að fara með hann heim í bílastæðið hjá þér?
9
Þetta er vandamál bæjarins. Þessir bátar og bílar eru búnir að vera hérna ansi lengi, við
þurfum bara að bjóða upp á vaktað svæði fyrir þá, þar sem maður getur leigt pláss.
SAMKEPPNI VIÐ NEW YORK
Þegar Suðurtangi er fullbyggður, hvar sérðu framtíðaratvinnusvæði Ísafjarðar?
Já. Verðum við þá ekki bara komin yfir í Dýrafjörð eitthvert? Komin tvöföld göng og stutt
á milli. Við getum ekki byggt endalaust í Skutulsfirði.
Væri eftirsóknarvert að stækka þjóðgarða og/eða friðlönd, eða ætti heldur að nýta
þau til atvinnu og byggða?
Ja, ég held að það væri ágætt að stækka friðlönd, en þetta er náttúrulega ágætt eins
og er. Við erum með Hornstrandir, sem eru lokaðar eiginlega og það er engin byggð
þar. Þannig að við erum í ágætis málum hérna á Vestfjörðum, held ég. En menn eru að
tala um að banna þarna fjórhjól og flugvélar. Og þá mætti alveg grafa yfir þetta bara. Ef
enginn á að komast þangað nema gangandi útlendingar. Ég nenni því ekki.
Þetta er mjög gott eins og þetta er.
Hvernig mætti fegra bæinn okkar?
Það er náttúrulega bara að laga götur og gangstéttar og umhverfið. Við erum með mjög
góða gangstíga. Ég er með hund og labba því rosalega mikið í gangstígum hérna, upp í
garðana og út um allt hérna.
Ísafjörður er nokkuð góður, mér finnst það. Við þurfum ekkert að vera einhver stórborg.
Við erum ekki að fara í samkeppni við New York. En það eru gangstéttir í miðjum
bænum sem fólk er að detta um. Af hverju er það ekki lagað? Við förum ekki fram á
mikið. Það á bara sífellt að vera að vinna í þessu.
EFTIRLIT ER NAUÐSYNLEGT
Hver er afstaða þín til fiskeldis, laxeldisins og þess alls?
Ég er fylgjandi eldi en ég vil auðvitað að menn skili arði hérna í heimabyggð og skilji
eitthvað eftir svo við getum byggt úr því . Ég vil ekki að allir peningar sem koma inn fari
bara annaðhvort til útlanda eða suður til Reykjavíkur.
Svo þarf þarf að hafa eftirlit með þessu, fylgjast með að menn séu að gera þetta rétt.
Ég get ekki séð að það sé þeirra hagur að það sé alltaf að sleppa lax úr þessum kvíum.
10
Þá geta þeir ekki selt neitt, ef þetta er fullt af lús eða sjálfdautt. Það þarf að tékka á
þeim annað slagið og sjá hvort þeir eru að gera rétt og ef ekki, þá refsa þeim. Þannig er
það bara.
Eins og þessi gistináttaskattur á skemmtiferðaskipin. Hvert fara peningarnir? Eru þeir
að fara til okkar?
Nú er stundum talað um þolmörk í ferðaþjónustu. Er það eitthvað sem að
kannski, bæði varðandi skipin og svo bara svona ágang ferðamennskunnar. Er
það eitthvað sem þú hefur skoðun á?
Mér líst bara vel á þetta. Auðvitað erum við pirruð stundum þegar útlendingar labba á
miðjum götum, Þetta skilar einhverju á hafnirnar og til fyrirtækja í bænum, Það kemur
mannskapur í bæinn og ég held að það sé bara fínt. Auðvitað er eitthvað hámark sem
þú getur tekið á móti. Getur ekki látið bara 50.000 manns hérna í land, sem hlaupa yfir
allt .
Það er frekar ferðamálaliðið sem getur svarað því hver þolmörkin eru á þessu. En mér
hefur fundist það ganga ágætlega.
Hvað finnst þér um kláfinn
Mér líst bara vel á þennan kláf, en þetta hlýtur auðvitað að vera gert í samráði við fólkið
í kring.
Þú verður að gera þetta eins og maður og vera þá með minni bíla og einhvern plön
þarna upp frá. Þú getur alveg gert þetta einhvern veginn þannig að þetta henti öllum.
Það þarf svo að færa Gróanda. Þetta er ekki eini staðurinn sem hægt er að rækta á.
Það þarf bara gera eitthvað sniðugt fyrir það verkefni svo allir verði sáttir.
Þessi mál verða leyst, ég hef enga trú á öðru Ég fór þarna upp í þyrlu fyrir 20 eða 30
árum síðan, þetta er rosalegt útsýni. Þannig að þetta er góð hugmynd ef einhver vill
gera þetta, þá þarf bara að greiða þeirra götu. En það má auðvitað ekki líða hvað sem
er þarna. Þurfum að gera þetta eins og menn.
STYÐJUM VIÐ STARFIÐ
Nú eru kjarnaviðburðir eins og Aldrei fór ég suður og Við Djúpið, og Act alone að
skila miklu til samfélagsins, bæði í beinhörðum peningum og eins svona
kynningarlega séð. Kemur til greina að efla starfsemi í kringum þessar hátíðir og
það starf frekar?
11
Mér finnst það, það átti að hætta með Aldrei, þá kom bærinn inn og allt fór af stað aftur.
Það eru rosa margir sem græða á Aldrei. Og það þarf bara að leggja pening í að halda
þessu lifandi. Þú leggur ekki á sama mannskapin að vera alltaf að gera þetta ókeypis.
Þetta kostar allt saman, þannig að, já, mér finnst rétt að bærinn stígi stígi inn í þetta
starf.
Þarf að setja meiri pening í fótboltann?
Ég er ekki svo kunnugur því en það þarf náttúrulega að styðja við þeirra starf. Byggja
upp aðstöðu í samráði við félögin.
Við þurfum að gera áætlun og sjá hvernig þetta á að enda. Ekki bara setja plástur hér
og plástur þar. Mér finnst að menn eigi að setjast vel yfir þetta og reyna að gera þetta
almennilega.
Við þurfum 25 metra laug og boltahús, eins og Kristján Kristjánsson sagði, yfir hálfan
gervigrasvöllinn. Við þurfum að hafa aðstöðu til að halda krökkunum í bænum, svo þau
geti sinnt sínum hugðarefnum
Krakkarnir þurfa góða íþróttaaðstöðu.
Hvernig sérðu fyrir þér hlutverk bæjarstjóra?
Hann á náttúrulega að stýra bænum eftir tilmælum bæjarstjórnar. Hann verður að vera
með smá ákvörðunarvald sjálfur. Bæjarstjórn á bara að vera yfir stóru málunum, en
bæjarstjórinn á að reka bæinn í litlum málum og taka á kennaramálum,
starfsmannamálum og öllu sem viðkemur bænum.
Eru einhverjir flokkar sem þið eruð áhugasamir um að starfa með, umfram aðra?
Og eru einhverjir flokkar sem þið mynduð ekki vilja starfa með?
Ég er nýr í þessu, ég skal viðurkenna það. Mér finnst allir flokkarnir vera með sömu
stefnuskránna. Ef maður les stefnuskrána hjá þeim og hjá okkur, þetta er allt sama
stefnuskráin. Þetta er bara spurning hverjir ætla að vera með og gera þetta. Hver er
doer-inn? Þetta snýst um það, Þetta snýst líka allt um peninga, menn verða bara að
redda því. Við verðum að hala inn meiri peninga til þess að geta þetta allt og ef við
ætlum að stækka þá þurfum við gera það, það virðast allir hafa viljann til þess
Þannig að ég ætla ekki að útiloka neitt, ég held að það séu allir ágætir, það vilja allir
það sama.
12
MÁLFRELSI ER MIKILVÆGT
Finnst þér vera erfitt, af því að nú ert þú í forsvari fyrir Miðflokkinn, sem er að fá
allskonar umtal á landsvísu með Sigmund Davíð og Snorra alltaf í fréttum og allir
brjálaðir, eitthvað fánavesen og svona. Finnst þér það hafa verið framboðinu ljár í
þúfu hér vestra? Finnst þér eins og fólk sé ekki að hlusta á ykkur eða gefa ykkur
séns út af þessari spyrðingu eða hvað?
Þá er það bara svoleiðis. Það verður að vera málfrelsi í landinu, ef við ætlum að
rökræða eitthvað, ég og þú, má ég þá aldrei segja neitt sem er á móti þinni skoðun? Ég
hef mína skoðun aðrir hafa sína.
En menn verða snarvitlausir þegar einhver segir eitthvað sem þeim líkar ekki, þá verða
þeir bara snarvitlausir. Þetta á ekki að vera svona.
Menn eiga að geta sest niður og rætt málin og komist að einhverri niðurstöðu. Það
verður að hafa einhverja svona menn eins og Miðflokkinn, sem þora að segja eitthvað
sem fellur ekki í kramið hjá öllum.
Eins og hvað hann Snorri er að gera á þinginu, hann er að segja hlutina eins og hann
sér þá, og það eru allir brjálaðir. Hann þorir samt að segja þetta, ég bara virði hann fyrir
það og Sigmund Davíð líka.
Kannski heilbrigt að fá hlutina upp á borðið?
Er það ekki miklu betra? Þá er hægt að ræða málin og taka afstöðu, Sigmundur Davíð
stóð með þjóðinni í Icesavemálinu, núna vill enginn muna það. -
Ég veit ekki hvort Sigmundur Davíð hefur alltaf rétt fyrir sér, en menn verða að fá að
segja sína skoðun. Kannski er hún leiðinleg, en þá þarf bara að ræða hana og komast
að niðurstöðu. Varðandi þessi fánamál, þá sagði hann bara að honum fyndist of mikið
af þessum fána, þetta væri út um allt í skólunum, fyrir utan, fyrir innan, þetta væri í
stofunum og kennararnir með hann utan um hálsinn. Honum fannst það of mikið.
Gátu menn ekki bara rætt málin af einhverju viti. Af hverju svara menn ekki bara með
einhverri rökræðu? Nei, það verður bara hætt að kjósa Miðflokkinn og allir drulla yfir
hann og ég veit ekki hvað og hvað. Mér finnst þetta voðalega vitlaust.
En Snorri var ekkert að tala um hinsegin fólk, hann nefndi það ekki þarna. Hann var
bara að tala um að honum fyndist of mikið af þessum fána. Ég get alveg sagt þér að
mér finnst kannski íslenski fáninn of mikið uppi hjá þér.
13
Já, ég þarf kannski að fara taka hann niður.
Hann hangir alltaf uppi.
Það eru lögin, maður, nýju lögin.
Ég veit það, þetta bögglar mig bara, þannig er það
Mamma er sammála þér.
14